Þrjár systur í heimsókn
Fyrst birt: 08.08.2012 19:03, Síðast uppfært: 08.08.2012 19:03
Flokkar: Tónlist, Síðdegisútvarpið

Þær eru þekktar sem Þrjár systur. Ingibjörg, Þórunn og Dísella Lárusardæturnar verða með létta, skemmtilega og fjölbreytta tónleika á heimaslóðum í Hlégarði, Mosfellsbæ annað kvöld. Nokkuð langt er síðan þær sungu saman síðast.
Systurnar voru gestir Síðdegisútvarpsins og tóku lagið fyrir hlustendur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












