Syngur lög ömmu Bergþóru

Valný Lára Jónsdóttir

Margir muna eftir vísnasöngkonunni Bergþóru Árnadóttur. Bergþóra fæddist 15. febrúar 1948 og hefði því fagnað 64 ára afmæli sínu í gær. Bergþóra byrjaði ung að semja lög við ljóð íslenskra skálda.

Í kvöld verða minningartónleikar í Salnum Kópavogi undir yfirskriftinni Afturhvarf og svo aftur annað kvöld í Hofi, Akureyri. Fyrstu tónleikarnir í röðinni voru í gærkvöldi og meðal þeirra listamanna sem þar komu fram voru Guðrún Gunnars, Pálmi Gunnarsson, Svavar Knútur, Aðalsteinn Ásberg, Hjörleifur Valsson og Pálmi Sigurhjartarson.

Senuþjófur tónleikanna er hins vegar 12 ára sonardóttir Bergþóru, Valný Lára Jónsdóttir sem syngur og spilar lög ömmu sinnar á gítar. Valný Lára gestur Síðdegisútvarpsins, ásamt föður sínum Jón Tryggva Jónssyni, og hún tók að sjálfsögðu lagið fyrir hlustendur.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku