Skálmöld í Stúdíói 12

Skálmöld og vinir

Hljómsveitin Skálmöld spilaði í beinni útsendingu í Stúdíói 12 í Efstaleiti í útvarpsþættinum Popplandi á Rás 2, föstudaginn 3. febrúar 2012.

Björgvin Sigurðsson er forsöngvari sveitarinnar og hann spilaði jafnframt á gítar, Baldur Ragnarsson spilaði á gítar og söng, Þráinn Árni Baldvinsson spilaði á gítar og söng, Gunnar Benediktsson var á hljómborði, Jón Geir Jóhannsson barði húðir og Snæbjörn Ragnarsson spilaði á bassa. Hér sjáum við og heyrum flutning á laginu Árás.

Hljóðmeistari Rásar 2 var Ragnar Gunnarsson en um myndbandsupptöku og myndblöndun sá Ólafur Jón Thoroddsen.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku