Gítargoð frá Sheffield í Rokklandi!



  • Prenta
  • Senda frétt

Í Rokklandi á sunnudaginn (01.07.2012) ræðir Óli Palli við lagasmiðinn, söngvarann og gítargoðið Richard Hawley frá Sheffield um lífið og listina, en hann sendi nýlega frá sér magnaða plötu sem heitir Standing at the Sky´s egde og er hans sjöunda plata.

Richard þessi hefur spilað með Nancy Sinatra og Pulp og Hank Marvin og Duane Eddy og Arctic Monkeys og allskonar liði. Í þættinum er líka boðið upp á síðustu tónleika Of Monsters And Men sem þau spiluðu á, áður en þau héldu upp í ævintýrið mikla til Ameríku í mars. Tónleikarnir fóru fram í heimabæ Nönnu Bryndísar söngkonu, Garðinum, á vita og vísnahátíð sem fór fram í byggðasafni Garðskaga 3. mars sl.

Richard Hawley / She brings the sunlight
Richard Hawley / Coles corner
Richard Hawley / Baby you´re my light
Richard Hawley / Run for me
Richard Hawley / Born under a bad sign
Richard Hawley / Time will bring you winter
Richard Hawley / Roll river
Richard Hawley / Open up your door
OMAM / Dirty Paws
OMAM / Love love love
OMAM / King and lionheart
OMAM / Little talks
OMAM / Lakehouse
Richard Hawley / For your lover give some time
Richard Hawley / Standing at the Sky´s edge
Richard Hawley / Don´t stare at the sun
Richard Hawley / Leave your boby behind you
Beach Boys / Isn´t it time
Oasis / Don´t look back in anger

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku