Blúskvöld Obama-hjónanna

Barack Obama Bandaríkjaforseti og Michelle Obama heiðruðu blústónlistina á tónlistarkvöldi í Hvíta húsinu á þriðjudag sem bar yfirskriftina: "In Performance at the White House: Red, White and Blues."

Meðal þeirra sem fram komu voru Mick Jagger, B.B. King, ''Trombone Shorty'' Andrews, Jeff Beck, Gary Clark Jr., Shemekia Copeland, Buddy Guy, Warren Haynes, Keb Mo, Susan Tedeschi and Derek Trucks. Booker T. Jones var tónlistarstjóri. Sveinn Helgason sagði frá herlegheitunum í Síðdegisútvarpinu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku