Tóku átta unga sjíta af lífi

Mynd: AFP.


  • Prenta
  • Senda frétt

Átta ungir sjítar í norðurhluta Íraks voru teknir af lífi í dag af mönnum sem sagðir eru tengjast hryðjuverkanetinu al-Kaída. Árásarmennirnir söfnuðu saman 25 mönnum á veginum milli bæjanna Amerli og Suleiman Bek. Súnnítunum var sleppt en hinir voru skotnir. Þeir voru á aldrinum 16 til 20 ára.

Fjórir lögreglumenn slösuðust í sprengingu við árásarstaðinn þegar þeir ætluðu að rannsaka morðin. Sprengjan var falin undir einu líkanna. 37 voru handteknir grunaðir um aðild. Sex aðrir voru drepnir í árásum víðs vegar um landið.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku