Tjón á lögreglubílum

Kostnaður lögreglu vegna tjóna á ökutækjum og búnaði í fyrra var um 7,3 milljónir króna og tjónin 80. Þeim hefur fækkað nokkuð frá því árinu áður þegar þau voru 96 og kostnaðurinn milljón meiri, um 8,4 milljónir.

2008 voru tjónin hátt í hundrað og sjötíu og kostnaðurinn rúmar 13 milljónir.  Starfshópur ríkislögreglustjóra telur að tjónum hafi fækkað vegna þess að minna er ekið, námskeið og  aðhald hafi skilað betra vinnulagi og loks lágmarki aukinn öryggisbúðnaður á bílum lögreglu, skemmdir. Akstur á vegum lögreglunnar í landinu hefur dregist saman um 29% frá því sem var 2007. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku