Prenta frétt

Senda frétt Horfa á frétt

Tilraunaveiðar lofa góðu

Tilraunaveiðar smábáta frá Hornafirði lofa góðu um að hægt sé að stunda makrílveiðar á færi og vinna dýrmæta gæðavöru úr aflanum.

Ristastór skip koma með 2000 tonn að landi, jafnvel meira. Aflinn er loðna, kolmunni, síld og nú síðast makríll. Menn segja þetta mikla búbót og moka honum á land, 116 þúsund tonnum í fyrra. Eitt örlítið brot af þessum afla fengu þrír handfærabátar sem gerðu tilraun til að ná makrílnum í fyrrasumar, fengu þeir samtals innan við 10 tonn.

Útiveran er stutt á smábátunum, fiskurinn fer rakleitt í krapakælingu í lestinni og er svo gott hráefni sem orðið getur þegar hann kemur í land. Þannig er fiskurinn úrvalshráefni í verðmæta matvöru, sem þeir hafa þróað í samvinnu við útibú Matís á Hornafirði. Það var þó ekki upphaflega hugmyndin.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

29. júlí 2010

Streymiþjónusta