Tillaga um vantraust á ríkisstjórnina



  • Prenta
  • Senda frétt

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, lagði í dag fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um vantraust á ríkisstjórnina.

Í tillögunni er lagt til að Alþingi lýsi „þeim vilja sínum að þing verði rofið eigi síðar en 28. febrúar 2013 og efnt til almennra þingkosninga 27. apríl 2013. Fram að kjördegi sitji starfsstjórn skipuð fulltrúum allra flokka á þingi“.

Í greinargerðinni kemur fram að vantrauststillagan sé lögð fram vegna stjórnarskrármálsins. Hún beinist gegn ríkisstjórninni „þar sem hún getur ekki afgreitt frumvarp til stjórnarskipunarlaga byggt á þeim drögum sem samþykkt var að leggja til grundvallar nýrri stjórnarskrá og samþykkt voru með yfirgnæfandi meiri hluta íþjóðaratkvæðagreiðslu 20. október 2012“.

Þór segir í tillögunni að ríkisstjórnin gangi í berhögg við augljósan vilja þjóðarinnar um nýja stjórnarskrá. Slíkri ríkisstjórn sé ekki stætt að vera við völd.  

(pdf)

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku