Tillaga um breytta skipan refaveiða



  • Prenta
  • Senda frétt

Ásmundur Einar Daðason og tíu aðrir þingmenn Framsóknar, Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram tillögu á Alþingi um breytta framtíðarskipan refaveiða á Íslandi. Vilja þingmennirnir að umhverfisráðherra verði falið það verkefni.

Markmiðið verði að refastofninum verði haldið innan eðlilegra marka. Svo það náist feli breytingarnar meðal annars í sér að refaveiðar verði ekki bannaðar á ákveðnum landsvæðum, að teknar verði aftur upp greiðslur úr ríkissjóði vegna fækkunar refa og að greiðslur fyrir hlaupadýr og grenjavinnslu verði þær sömu um allt land. Ráðherra leggi frumvarp til laga fyrir Alþingi um þau atriði sem krefjist lagabreytinga fyrir 1. apríl 2013.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku