Tígrisdýraslátrarar handteknir

Tígrisdýr. Mynd úr safni.

Lögregla í Bangkok í Tælandi handtók nýlega fimm menn sem voru að hluta niður tígrisdýr í neðanjarðarsláturhúsi. Lögregla elti einn mannanna eftir að hann kom alblóðugur út úr sjoppu, en þangað hafði hann brugðið sér eftir nauðsynjum.

Hann vantaði klaka. Maðurinn vakti grunsemdir lögreglu. Enda fannst hann við fimmta mann að verka stórt tígrisdýr í húsi í grennd við sjoppuna. Þar fundust líka skrokkar af sebrahestum, villtum vísundum og fílum auk fjögur hundruð kílóa af tígriskjöti. Í stórum frysti var tígrisskrokkur í formalíni,  mikið af beinum, og húðir af fílum og ljónum.  Í Tælandi er talin vera miðstöð ólöglegrar verslunar með dýr í útrýmingarhættu. Mikil eftirspurn er eftir slíku víða í Asíu. Kjötið er selt á veitingastöðum, skinnin þykja kjörgripir og beinin notuð í hefðbundin lyf. Eftir miklu er að slægjast og ýmsum brögðum beitt. Í fyrravor var maður frá Sameinuðu furstadæmunum handtekinn í Bangkok og í fórum hans fundust lifandi hlébarðahvolpar, apar og svartbjörn.

 

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku