Tiger Woods á möguleika á sigri
Fyrst birt: 12.02.2012 13:11, Síðast uppfært: 12.02.2012 13:12

Tiger Woods getur náð fyrsta sigrinum á PGA-mótaröðinni í golfi í rúm tvö ár
Kylfingurinn Charlie Wi frá Suður-Kóreu hefur þriggja högga forystu fyrir lokahringinn á Pebble Beach golfmótinu í Kaliforníu en mótið tilheyrir bandarísku PGA-mótaröðinni. Wi lék þriðja hringinn á 69 höggum eða þremur höggum undir pari og er á samtals 15 höggum undir pari.
Bandaríkjamaðurinn Ken Duke er í öðru sæti á samtals 12 höggum undir pari en Tiger Woods er þriðji á samtals 11 höggum undir pari og á því ágætis möguleika á að landa fyrsta sigri sínum á PGA-mótaröðinni í rúm tvö ár. Lokahringurinn verður leikinn í dag.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







