Þungi í fólki yfir kjörum sínum

Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.


  • Prenta
  • Senda frétt

Hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum eru orðnir langþreyttir á niðurskurði, auknu álagi og að þurfa að vinna með lélegum tækjum án þess að fá neina umbun fyrir í launum. Launahækkun forstjóra spítalans á dögunum var kornið sem fyllti mælinn.

Hiti var á fundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í morgun. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður félagsins, segir að boðað hafi verið til fundarins svo félagsmenn gætu rætt mál sem á þeim brenna annars staðar en á kaffistofum og á Facebook. Margir félagsmenn hafi kallað eftir viðbrögðum félagsins vegna launahækkunar Björns Zoëga, forstjóra spítalans. Félagið sé hins vegar bundið friðarskyldu og sé ekki heimilt að grípa til aðgerða til að knýja fram kjarabætur.

„Auðvitað var þungi í fólki yfir kjörum sínum, því álagi sem það hefur verið undir og þessum mikla niðurskurði sem hefur verið á spítalanum síðastliðin fjögur ár,“ segir Elsa.

Hún segir að launahækkun forstjórans hafi verið kornið sem fyllti mælinn þó hægt sé að gleðjast yfir því að hægt sé að umbuna fyrir vel unnin störf. Hún segir að margir hjúkrunarfræðingar hafi fengið starfstilboð erlendis frá. „Menn telja að fyrst að búið er að skapa þarna fordæmi fyrir slíkri umbun þá hljóti það að eiga við um fleiri,“ segir hún.

Elsa segir það hafa komið á óvart þegar í ljós kom að tugir fundargesta hafi norskt hjúkrunarleyfi. „Það vildi nú svo einkenniilega til að akkúrat þennan klukkutíma sem að fundurinn stóð í morgun þá fékk einn fundarmanna boð frá Noregi um að koma þangað til starfa,“ segir hún.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku