Þróttur vann Leikni í Breiðholtinu
Fyrst birt: 12.08.2012 19:37, Síðast uppfært: 12.08.2012 19:40

Reykjavíkurliðin Leiknir og Þróttur mættust á Leiknisvelli í 1. deild karla í knattspyrnu í dag og enduðu leikar með 2-1 sigri Þróttara. Halldór Arnar Hilmisson og Helgi Magnús Pétursson skoruðu fyrir Þrótt en Kristján Páll Jónsson gerði mark Leiknis.
Þróttur er komst með sigrinum upp í 6. sæti deildarinnar með 21 stig eftir 15 leiki en Leiknir er með 14 stig í 10. sæti.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












