Þröstur Íslandsmeistari í skák

Þröstur og Bragi tefldu til þrautar í kvöld
Þröstur Þórhallsson varð í kvöld Íslandsmeistari í skák í fyrsta sinn eftir sigur á Braga Þorfinnssyni 6-5 í úrslitaeinvígi um titilinn.
Þröstur og Bragi komu jafnir í mark á Íslandsmótinu sjálfu sem fram fór í apríl og var það sterkasta á þessari öld. Þeir þurftu því að há fjögurra skáka einvígi um titilinn með hefðbundnum umhugsunartíma og lauk því með jafntefli 2-2 á mánudag. Teflt var til þrautar í kvöld og þar tefldu þeir eins margar skákir og mögulegt var samkvæmt reglum þar um.
Fyrst tefldu þeir tvær atskákir - 25 mínútur + 10 sekúndur á leik - og lauk þeim báðum með jafntefli. Að því loknu var tíminn styttur - 10+10 - og vann Þröstur fyrri skákina en Bragi jafnaði metin í þeirri síðari. Þá voru tefldar tvær hraðskákir - 5+3 - og vann Bragi þá fyrri og en Þröstur jafnaði metin í síðari skákinni.
Þá var komið að bráðabanaskák eða svokallaðri Armageddon. Þar hefur hvítur 5 mínútur og svartur 4 mínútur en svörtum dugar hins vegar jafntefli til sigurs. Þröstur, sem dró svart, hafði sigur í skákinni og vann þar með einvígið samtals 6-5.
Þetta er í fyrsta skipti sem Þröstur verður Íslandsmeistari í skák en hann tók fyrst þátt árið 1985. Titillinn tryggir Þresti sæti í landsliði Íslands sem keppir á Ólympíuskákmótinu í Istanbúl í haust og jafnframt mun hann tefla fyrir Íslands hönd á Evrópumeistaramóti einstaklinga sem haldið verður í Póllandi í apríl 2013.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












