Þriðji sigur Hamiltons á tímabilinu
Fyrst birt: 09.09.2012 15:29, Síðast uppfært: 09.09.2012 16:56

Lewis Hamilton í keppninni í dag - Mynd: AFP
Lewis Hamilton á McLaren kom fyrstur í mark í Formúlu 1 kappakstrinum á Ítalíu í dag. Þetta er þriðji sigur Hamiltons á tímabilinu en hann vann einnig kappaksturinn í Kanana í júní og í Ungverjalandi í júlí.
Sergio Perez á Sauber varð annar, Fernando Alonso á Ferrari þriðji og liðsfélagi hans, Filipe Massa, fjórði. Kimi Räikkönen á Lotus varð svo fimmti yfir marklínuna og Michael Schumacher á Mercedes sjötti.
Fernando Alonso er í efsta sæti á stigalista ökuþóra með 179 stig og Lewis Hamilton er annar með 142 stig en Kimi Räikkönen er í þriðja sætinu með 141 stig. Lið Red Bull er í efsta sæti bílasmiða með 272 stig.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is










