Þór í annað sætið eftir sigur í dag

Tveir leikir voru á dagskrá í 1. deild karla í knattspyrnu í dag.
BÍ/Bolungarvík vann 3-1 sigur á Hetti á Torfnesvelli. Höttur komst yfir með marki frá Högna Helgasyni en Andri Rúnar Bjarnason jafnaði fyrir heimamenn og Mark Tubæk, leikmaður BÍ/Bolungarvíkur, gerði svo útum leikinn með tveimur mörkum.
Þá gerði Þór Akureyri góða ferð til Ólafsvíkur og sigraði heimamenn í Víkingi 2-1. Chukwudi Chijindu gerði bæði mörk Þórsara á fimm mínútna kafla í fyrri hálfleik en Torfi Karl Ólafsson skoraði mark heimamanna í þeim síðari.
Víkingur Ólafsvík er sem fyrr í efsta sæti deildarinnar með 28 stig en lið Þórs er komið í annað sætið með 26 stig. BÍ/Bolungarvík er nú með 19 stig í sjöunda sæti en Höttur vermir botninn með 12 stig, tveimur stigum frá Reykjavíkurliðunum ÍR og Leikni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













