Þjóðverjar í undanúrslit

Þjóðverjar unnu Grikki í átta liða úrslitum á EM í kvöld


  • Prenta
  • Senda frétt

Þjóðverjar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum á Evrópumótinu í knattspyrnu með því að leggja Grikki 4-2 í átta liða úrslitum.

Philipp Lahm skoraði fyrsta mark Þjóðverja á 39. mínútu. Grikkir jöfnuðu metin í 1-1 með marki frá Giorgos Samaras á 55. mínútu en Sami Khedira náði forystunni aftur fyrir Þjóðverja sex mínútum síðar. Miroslav Klose jók forskot þýska liðsins með marki á 68. mínútu og Marco Reus skoraði fjórða markið á 74. mínútu. Dimitris Salpingidis lagaði stöðuna lítillega fyrir Grikki þegar hann skoraði úr vítaspyrnu á síðustu mínútu leiksins og lokatölur 4-2 Þjóðverjum í vil.

Þjóðverjar mæta annaðhvort Englendingum eða Ítölum í undanúrslitum en þær þjóðir mætast í átta liða úrslitum á sunnudag.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku