Þjálfari Rússa hættur
Fyrst birt: 24.01.2012 15:37, Síðast uppfært: 24.01.2012 15:52

Vladimir Maximov hefur sagt upp starfi sínu sem þjálfari rússneska landsliðsins í handknattleik en hann hefur þjálfaði liðið nær samfleytt í tvö áratugi.
Undir stjórn Maximov unnu Rússar til gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Sidney árið 2000 og bronsverðlauna á leikunum í Aþenu árið 2004, urðu heimsmeistarar árið 1993 og 1997 og Evrópumeistarar árið 1996.
Rússar léku í C-riðli á Evrópumótinu í Serbíu þar sem þeir gerðu jafntefli við Ungverja í fyrsta leik sínum en töpuðu svo fyrir Frökkum 28-24 og Spánverjum 26-23. Liðið hafnaði í neðsta sæti riðilsins með eitt stig og komst þar af leiðandi ekki áfram í milliriðla.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







