Þingmenn vilja annan forstjóra

Þingmenn bæði Samfylkingarinnar og Vinstri grænna vilja koma í veg fyrir að Páll Magnússon verði gerður að forstjóra Bankasýslu ríkisins. Mikill vilji virðist til þess að starfið verði auglýst aftur.

Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi, var nýlega ráðinn forstjóri bankasýslunnar. Hann hefur ekki enn tekið til starfa og Elín Jónsdóttir gegnir enn embættinu. Bankasýslan er stjórnsýslustofnun sem fer með eignarhluti ríkisins í bönkunum, -en í kjölfar hrunsins varð ríkið eigandi stórra eignarhluta í ýmsum bönkum og sparisjóðum.

Páll er með meirstaragráðu í opinberri stjórnsýslu sem talin var honum til tekna þegar hann fékk starfið.

Ríkið á 5 prósent í Íslandsbanka, 13 prósent í Arion og 81 prósent í nýja Landsbankanum. Þá á ríkið líka bilinu 50 til 90 prósent stofnfjár í fimm sparisjóðum.

Bankasýslan velur, -fyrir hönd ríkisins, -fólk til að sitja í stjórnum þessara banka og sparisjóða. Ferlið er formlegt, -stjórn bankasýslunnar skipar sérstaka þriggja manna valnefnd, -sem svo aftur velur þessa fulltrúa almennings í stjórnir bankanna.

Forstjórinn sér um hina daglegu stjórnun og Páll var nýlega ráðinn í starfið í kjölfar auglýsingar þar sem fjórir sóttu um.
Páll á að baki feril í stjórnmálum, -var meðal annars aðstoðamaður tveggja framsóknarráðherra.

Ráðningin hefur verið umdeild, -og mikil andstaða við hana í þingliði beggja stjórnarflokka. Menn vilja að fundin verði leið til að bakka út úr áformunum. Málin hafa verið rædd í þingflokkum bæði Samfylkingarinnar og vinstri grænna og eftir því sem fréttastofa hefur hermt voru þar engir sem studdu eða voru ánægðir með ráðningu Páls.

Það er hins vegar þegar búið að ráða Pál og því spuring hvernig hægt sé að gera það með lögformlegum hætti.

Rökin fyrir því að Páll taki ekki starfið eru meðal annars þau að trúverðugleiki Bankasýslunnar muni skaddast við það að hann setjist í stólinn, -ekki síst í ljósi fortíðar hans sem aðstoðarmanns þeirra Valgerðar Sverrisdóttur og Finns Ingólfssonar þegar þau gengdu ráðherraembættum á sínum tíma.

Þau störf voru hins vegar reyndar metin honum til tekna við ráðninguna.

Þá telja þeir sem mest eru á móti ráðningunni að sú neikvæða umræða sem verið hefur um hana frá því tilkynnt að Páll hefði fengið starfið fyrir viku, -muni skaða bankasýsluna svo mjög að ekki verði aftur snúið nema með því að auglýsa starfið aftur og fá í þetta sinn óumdeildan mann sem klárlega hafi mikla sérfræðikunnáttu.

Ekki hefur verið tekin nein formleg ákvörðun, -eftir því sem fréttastofa kemst næst, -og Páll er ekki hættur við að taka starfið. Hins vegar er þrýstingurinn slíkur að stjórn Bankasýslunnar virðist illa stætt á því að standa við ráðninguna.

Einstaka þingmenn hafa meira að segja velt því upp í samtölum við fréttastofu að breyta beri lögum þannig að Páli verði ekki sætt, -bakki stjórn bankasýslunnar ekki út úr þessari umdeildu ákvörðun.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Stjórnmál

Tilkynna um bilaða upptöku