Telja yfirvöld leyna upplýsingum

Flokkar: Innlent


  • Prenta
  • Senda frétt

Um 90% prósent Íslendinga telur að ríkisstjórnin leyni upplýsingum sem varða almannahagsmuni oft eða stundum. Þetta kemur fram í nýrri viðhorfskönnun sem kynnt verður í hádegisfyrirlestri í Háskóla Íslands á eftir.

Þar kemur einnig fram að 75-90% aðspurðra telja að ráðuneytin, sveitarfélög og þjónustu- og eftirlitsstofnanir á vegum ríkisins leyni almenning upplýsingum sem varða hagsmuni hans. Fundurinn hefst klukkan tólf í stofu 101 í Odda og er öllum opinn en Jóhanna Gunnlaugsdóttir, prófessor í upplýsinga- og skjalastjórn, heldur erindi um niðurstöðurnar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku