Tap í fyrsta leik
Fyrst birt: 05.07.2012 12:08, Síðast uppfært: 05.07.2012 17:25

Geir Sveinsson er þjálfari íslenska liðsins.
Íslenska U20 ára landslið karla í handbolta tapaði sínum fyrsta leik í úrslitakeppni Evrópumótsins sem stendur yfir í Tyrklandi. Íslenska liðið mætti frændum okkar, Dönum, í morgun og tapaði 28-22 en staðan var jöfn í hálfleik, 12-12.
Næsti leikur er gegn Svíum, sem þykja eiga eitt sterkasta liðið í þessum aldursflokki, á morgun og síðasti leikur liðsins í riðlinum er gegn Sviss á sunnudaginn. Tvær efstu þjóðirnar komst áfram í 8-liða úrslit.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













