Taka ekki mark á Arababandalaginu

Leiðtogar Arababandalagsins kölluðu eftir sameiginlegu friðargæsluliði, bandalagsins og Sameinuðu Þjóðanna á fundi sínum í Kaíró í dag. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem hvatt er til þess að alþjóðasamfélagið reyni að binda enda á ellefu mánaða átök í Sýrlandi sem kostað hafa þúsundir lífið.
Um leið var störfum eftirlitsnefndar bandalagsins sagt formlega lokið. Eins var talað um að greiða þyrfti fyrir samskiptum við stjórnarandstæðinga í Sýrlandi og styðja þá með ráðum og dáð. Mögulegt er að sendiherrar Sýrlands verði reknir frá löndum bandalagsins. Við upphaf fundar utanríkisráðherra Arababandalagsins var Saud al-Faisal, sendiherra Sádi Arabíu þungorður. Spurði hversu lengi menn ætluðu að standa hjá á og horfa á þær hremmingar sem bræðraþjóðin í Sýrlandi yrði að þola og Sýrlensk stjórnvöld murkuðu lífið úr eigin þjóð? Sýrlensk stjórnvöld voru fljót að hafna ályktun fundarins. Sendiherra Sýrlands hjá Sameinuðu þjóðunum sagði Sýrlendinga ekkert mark taka á ályktunum um málefni þeirra sem væru samþykktar að þeim fjarri. Sýrland var rekið úr Arababandalaginu í haust. Árásir héldu áfram á borgina Homs í dag eftir stutt hlé í morgun. Þar er farið að sneiðast um mat og drykk. Stjórnarherinn hefur setið um Homs í marga daga. Talið er að um fjögur hundruð manns hafi fallið þar síðustu vikuna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







