Sýrlenskur hershöfðingi skotinn

Sýrlenskur hershöfðingi var skotinn til bana í Damaskus í morgun af vopnuðum hópi hryðjuverkamanna, eins og segir í frétt frá opinberri fréttastofu sýrlenskra stjórnvalda.

Hershöfðinginn, Issa al Khawli, var yfirmaður sjúkrahúss í borginni. Hörð átök hafa verið í Sýrlandi að undanförnu milli hópa uppreisnarmanna og hersveita stjórnvalda. Hundruð hafa fallið síðustu daga.

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku