Sykurát skaðar heilsuna

Neysla sykurs í heiminum hefur þrefaldast á síðustu fimmtíu árum. Sykur er skaðlegur og ávanabindandi eins og áfengi og tóbak og er rót vaxandi heilsu vanda eins og offitu og vissra lifrasjúkdóma.

Þetta er mat bandarískra heilsusérfræðinga, sem hvetja til þess að  neysla sykurs verði takmörkuð með sköttum.

Vísindamenn við  Kaliforníuháskóla í San Franscisco segja í grein í tímaritinu Nature að sykur sé jafn óhollur fyrir lifrina og áfengi.  Sykur sé í auknum mæli notaður í unnar matvörur og skapi því töluverða hættu fyrir almannaheilsu. Því beri að takmarka notkun sykurs með reglum og sköttum á sama hátt og notkun áfengis og tóbaks.

Heilsusérfræðingarnir bæta því við að fleiri vísindalegar sannanir séu fyrir því að sykur geti valdið ferli sem leiði til eitrunar í lifur og öðrum sjúkdómum. Þá sé sykurneysla tengd háum blóðþýstingi og  sykursýki. Nokkur ríki hafi þegar hafið að skattleggja óhollan mat. Þannig sé umbreytt mettuð fita skattlögð í Danmörku og Ungverjalandi og skattur á gosdrykki hafi verið samþykktur í Frakklandi.

Því er lagt til að sérsakur skattur verði lagður á unnar matvörur sem sykri sé bætt í. Þetta á m.a. við gosdrykki, djús, sportdrykki, súkkulaði, mjólk og sykrað morgunkorn. Þá telja vísindamennirnir einnig ástæðu til að takmarka sölu á þessum vörum á skólatíma barna og unglinga.

Breskir sérfræðingar vara við því að gera sykur að blóraböggli og segja að lykilinn að góðri heilsu sé  hóflegt og margbreytilegt fæði og heilsusamlegt líferni.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent, Neytendamál

Tilkynna um bilaða upptöku