Sýknaður því brotin voru fyrnd

Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað karlmann af því að hafa brotið kynferðislega gegn bróðurdóttur sinni, ítrekað á árunum 1990 til 1996, þegar stúlkan var á aldrinum sex til þrettán ára. Brotin áttu sér stað á heimili stúlkunnar þegar maðurinn var þar gestkomandi.

Ákærða var tilkynnt um kæruna í desember árið 2010 en brotin voru fyrnd í júní sama ár. Maðurinn var því sýknaður. Í dómnum segir að framburður konunnar þyki trúverðugur og ekki sé varhugavert að slá því föstu að maðurinn hafi gerst sekur um þá háttsemi sem hann er kærður fyrir. Hann neitaði sök. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku