Svik og prettir við miðasölu

Ólympíusvæðið í Lundúnum. Mynd: AFP
Interpol í Lundúnum varar fólk við því að kaupa miða á Ólympíuleikana gegnum ótryggar vefsíður. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að tíu vefsíður sem félagið Euroteam heldur úti séu svikamylla og rannsakar lögreglan í Lundúnum fyrirtækið sem og lögreglan í Noregi.
Um er að ræða miða á viðburði Ólympíuleikanna 2012 og Ólympíuleika fatlaðra 2012.
Þær vefsíður sem um ræðir eru eftirfarandi:
Þeir sem keypt hafa miða af einhverri þessara síðna í umsjá Euroteam, er ráðlagt að hafa beint samband við félagið sjálft og greiðslufyrirtækið sem skipt er við. Lögreglan telur að þeir sem nú þegar hafa keypt miða af einhverri síðna Euroteam muni ekki fá miðana afhenta þar sem félagið hefur ekki getað sannreynt uppruna miðanna. Þeir sem hyggjast kaupa miða á Ólympíuleikana ættu að hafa samband við íþrótta- og ólympíusambandið eða versla við þá síðu sem Interpol gefur upp, www.tickets.london2012.com
Þau lönd sem talið er að svikamyllan nái til eru Bandaríkin, Bretland, Austurríki, Ástralía, Belgía, Búlgaría, Kanada, Kína, Kýpur, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Ísland, Írland, Ítalía, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Malta, Holland, Noregur, Pólland, Portúgal, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














