Svíar ekki á HM í handbolta

Það dugði Svíum ekki að Kim Andersson ákvað að spila með þeim gegn Svartfellingum í dag


  • Prenta
  • Senda frétt

Sænska landsliðið í handknattleik tapaði í dag fyrir Svartfellingum með tveggja marka mun, 20-18, í síðari leik liðanna í umspili um sæti á HM á Spáni í janúar, en leikurinn fór fram í Podgorica.

Svartfellingar skoruðu tvö síðustu mörk leiksins og tryggðu sér þar með sæti á HM í fyrsta sinn.  Svíar unnu fyrr leik liðanna í Svíþjóð um síðustu helgi með eins marks mun, 22-21, og því unnu Svartfellingar samanlagt með einu marki, 41-40.  Það dugði ekki Svíum að stórstjarna þeirra, Kim Andersson, ákvað að spila með þeim í dag, en hann hafði ákveðið að sleppa báðum leikjunum.  Eftir nauman sigur Svía í fyrr leiknum ákvað hann að gefa kost á sér í seinni leikinn, en Svartfellingar gættu hans vel.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku