Þegar líður á sumarið fara landsmenn að huga að ávöxtum haustsins. Í Hallormsstaðarskógi gætir ýmissa grasa. Þar vaxa meðal annars bláber, hrútaber, jarðarber og rifsber, jafnvel hindberjarunnar sem dafna vel og eru búnir að blómstra. Berjaspekingur segir að miðað við tíðafarið ættu berin að vera orðin hvað þroskuðust á suðvesturlandi en þar hefur verið heitt og sólríkt. Berin þroskast hinsvegar hægar þar sem loftið hefur verið svalara eins og víða á Austurlandi. Fylgjast má með fréttum af berjasprettu á vefsíðunni www.berjavinir.com
Og nú er ástæða til að fylgjast vel með veðurspá því þegar rignir eða raki fellur á landið birtast kunnuglegir skógarbúar. Að minnsta kosti eru gómsætir lerkisveppir farnir að skjóta upp kollinum í lerkiskógum landsins. Þá má týna, bursta af þeim moldina, sneiða þá niður og steikja upp úr smjöri og smá sítrónusafa svo að liturinn haldi sér. SVeppina má líka frysta eða þurrka.
frettir@ruv.is