Sveinbjörg Norðurlandameistari

Sveinbjörg Zophoníasdóttir - Mynd: www.fri.is


  • Prenta
  • Senda frétt

Sveinbjörg Zophoníasdóttir úr FH sigraði í langstökki á Norðurlandamóti 20-22 ára í Jessheim í Noregi í gær. Sveinbjörg stökk 6,06 metra og tryggði það henni Norðurlandameistaratitilinn en hennar lengsta stökk er 6,10 metrar.

Þá varð Guðmundur Sverrisson í þriðja sæti í spjótkasti á mótinu í dag þegar hann kastaði 74,09 metra og er það fjórði besti árangur Íslendings í spjótkasti fráupphafi.

Nánar um mótið á heimasíðu Frjálsíþróttasambandsins.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku