Superbowl: Æsispennandi leikur

Leikmaður New York Giants, Zak DeOssie fagnar sigri. Mynd: AP
New York Giants lögðu í nótt New England Patriots í Superbowl, úrslitaleiknum í amerískum fótbolta, með 21 stigi gegn 17.
Leikurinn var æsispennandi fram á síðustu sekúndu en liðsheild Giants var afar sterk með leikstjórnandann Eli Manning, fremstan meðal jafningja. Manning var valinn maður leiksins en litið var á leikinn sem einvígi hans og Tom Brady leikstjórnanda Patriots.
Staðan í leikhléi var 10 - 9 fyrir Patriots. Giants skoruðu snertimark þegar tæp mínúta var eftir og Brady og félögum tókst ekki að svara í sömu mynt. New York liðið hrökk í gang undir lok keppnistímabilsins, komst með naumindum í úrslitakeppnina en leit ekki til baka eftir það. Leikið var í Indianapolis þar sem eldri bróðir Eli Manning, Peyton, hefur verið kóngurinn. Það má með sanni segja að litli bróðir hafi skráð nafn sitt á spjöld sögunnar með þessum sigri. Þetta er í annað skipti sem hann landar titlinum með Giants, fyrir fjórum árum vann liðið líka New England Patriots.
Superbowl eða Ofurskálin var að sjálfsögðu mikið sjónarspil en í leikhléi skemmti söngkonan Madonna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







