Sundlaugin í Grímsey lokuð



  • Prenta
  • Senda frétt

Sundlauginni í Grímsey hefur verið lokað ótímabundið. Of hættulegt þykir að synda í lauginni þar sem þakið á henni er of fúið.

Sundlaugin í Grímsey var tekin í notkun 1988. Þetta er innilaug, 12,5 metrar á lengd og þar er gufubað og heitur pottur. Laugin er vel sótt af bæði heimamönnum og ferðafólki, en nú hefur henni verið lokað vegna skemmda í þaki.

„Það er talið að það sé raki því áður en við fengum dúkinn yfir sundlaugina þá var svo mikill raki og allt rennandi og það er talið að það sé útfrá því,“ segir Jónína Sigurðardóttir, starfsmaður í sundlauginni.

Ekki liggur fyrir hversu umfangsmiklar skemmdirnar eru, né hvenær ráðist verður í viðgerðir en af öryggisástæðum hefur lauginni verið lokað á meðan málið er í skoðun.

Jónína vonar að farið verði sem fyrst í framkvæmdirnar. Segir hún að Grímseyingar geti illa verið án laugarinnar, þar fari fram sundkennsla barnanna í eynni, auk þess sem laugin sé mikilvæg heilsulind fyrir heimamenn.

„Við erum ekki með íþróttahús, engan tækjasal eða neitt og það væri fínt að fá sundlaugina bara strax aftur.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku