Suarez framlengir hjá Liverpool



  • Prenta
  • Senda frétt

Úrúgvæski knattspyrnumaðurinn Luis Suarez hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við Liverpool. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í dag.

Óvissa ríkti um framtíð hins 25 ára Suarez hjá félaginu en Brendan Rodgers nýráðinn knattspyrnustjóri var staðráðinn í halda leikmanninum.

Það er stórkostlegt að hafa tækifæri á að vinna með heimsklassaleikmönnum." sagði Rodgers og bætti við að nokkur félög hefðu lýst yfir áhuga á Suarez í sumar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku