Styðja launahækkun

93% landsmanna eru fylgjandi því að laun leikskólakennara verði hækkuð svo ekki komi til verkfalls.

Þetta er niðurstaða könnunar MMR - Markaðs og miðlarannsókna - á afstöðu landsmanna til boðaðs verkfalls leikskólakennara.

Spurt var: "Ert þú fylgjandi eða andvígur því að laun leikskólakennara verði hækkuð svo ekki komi til verkfalls þeirra 22. ágúst?" 

Rúm 67% voru mjög fylgjandi því að launin yrðu hækkuð og tæp 26% frekar fylgjandi, alls 93%.  Stuðningurinn er óháður stjórnmálaskoðun.

Þannig segjast nær allir sem styðja Samfylkingu og Vinstri græn vera fylgjandi hækkun launa, rúm 90% Framsóknarfólks og tæp 87% þeirra sem styðja Sjálfstæðisflokkinn.

Kjaradeila leikskólakennara og sambands íslenskra sveitarfélaga er í hnút. Sveitarfélögin hafa boðið leikskólakennurum 12 -14 % prósenta launahækkun, en Leikskólakennarar vilja 11 prósentustiga launaleiðréttingu til viðbótar og þar stendur hnífurinn í kúnni. 

 Rúmlega sextán þúsund börn eru í leikskólum sem reknir eru af sveitafélögum.

Sáttafundur stendur nú yfir hjá Ríkissáttasemjara. Það er lokatilraun til lausnar deilunni

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku