Stúlku bjargað úr húsarústum

Fimm ára stúlku í Kosovo var bjargað úr húsarústum, mörgum klukkustundum efðtir að snjóflóð lenti á húsinu. Að minnsta kosti sjö létust í flóðinu og þriggja er saknað. Stúlkan fannst grafin tíu metra ofan í skafli eftir að björgunarmenn heyrðu hana kalla og farsíma hringja.

Flóðið féll á fjallaþorp nærri landamærum við  Macedoniu og Albaníu. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku