Stuðningsmaður Íra horfinn

Stuðningsmenn Íra fylgjast með liði sínu á Evrópumótinu í knattspyrnu
Lögreglan í Póllandi leitar nú að James Nolan, 21 árs gömlum Íra, en ekkert hefur spurst til hans síðan um helgina.
Fram kemur á irishtimes.com að síðast hafi sést til Nolan í borginni Bydgoszcz undir sunnudagsmorgun en hann var staddur í Póllandi ásamt félögum sínum frá Írlandi til þess að fylgjast með írska landsliðinu keppa á Evrópumótinu í knattspyrnu. Þeir félagar brugðu sér út á lífið og er talið að hópurinn hafi lent í útistöðum við heimamenn og í kjölfarið tvístrast. Þegar hópurinn hittist aftur skilaði Nolan sér hins vegar ekki og ekki náðist í hann í síma. Því höfðu vinir hans samband við lögreglu sem hefur leitað hans síðan þá en engar vísbendingar hafa fundið um ferðir hans.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







