Stúdentshúfan

Í tilefni af minningar- og afmælistónleikum Péturs Kristjánssonar komu nokkrir vinir hans og félagar í Stúdíó 12 föstudaginn 6. janúar í útvarpsþættinum Popplandi á Rás 2 og tóku nokkur vel valin lög og hér má sjá og heyra flutning þeirra á Stúdentshúfunni eftir Bjartmar Guðlaugsson.

Fram komu Bjartmar Guðlaugsson, Sigurgeir Sigmundsson, Davíð Sigurgeirsson, Elvar Örn Friðriksson, Ásmundur Jóhannsson, Ingvar Alfreðsson og María Helena Haraldsdóttir. Ragnar Gunnarsson sá um hljóðupptökuna en Janus Bragi Jakobsson og Ólafur Jón Thoroddsen stjórnuðu myndavélunum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Stúdíó 12

Tilkynna um bilaða upptöku