Strákarnir lögðu Svía
Fyrst birt: 19.07.2012 21:42, Síðast uppfært: 19.07.2012 21:48

Íslenska U19 ára landslið karla í knattspyrnu bar sigurorð af Svíum á Svíþjóðarmótinu í dag. Lokatölur urðu 2-0 en markalaust var í leikhléi.
Elías Már Ómarsson kom Íslendingum yfir eftir klukkustundar leik og Sindri Björnsson innsiglaði svo sigur liðsins með marki tíu mínútum fyrir leikslok.
Íslensku strákarnir mæta liði Noregs á laugardaginn í lokaleik sínum. Ísland er í efsta sæti með sex stig en Noregur í öðru sæti með fjögur stig og því nægir íslenska liðinu jafntefli til að tryggja sér sigur á mótinu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














