Stjórnin samþykkti skilyrðin

Mynd: NordicPhotos/AFP
Ríkisstjórn Grikklands samþykkti í kvöld skilyrðin sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn settu fyrir því að Grikkir fái næstu greiðslu neyðarláns upp á 130 milljarða evra. Áætlun um frekari niðurskurð í landinu verður því lögð fyrir þingið á sunnudag.
Greiði meirihluti þingsins með henni verða Grikkir einu skrefi nær því að fá lánið.
Ekki gekk þó þrautalaust að fá fram samhljóða samþykki stjórnarinnar fyrir áætluninni en sex ráðherrar sögðu af sér í dag til að mótmæla henni. Í kvöld sagði Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, í ávarpi að ef áætlunin yrði ekki samþykkt og greiðslufall yrði hjá hinum opinbera, yrði efnahagslegt öngþveiti í landinu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentFleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Varar við efnahagslegu öngþveiti
Mótmæli í Grikklandi
Átök í Aþenu í dag





