Stjarnan í undanúrslit bikarsins

Stjarnan tryggði sér í kvöld síðasta sætið í undanúrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu


  • Prenta
  • Senda frétt

Stjarnan varð í kvöld síðasta liðið til að komast í undanúrslit bikarkeppni karla í knattspyrnu en liðið sigraði Fram 2-1 á heimavelli sínum í Garðabænum.

Garðar Jóhannsson kom Stjörnunni eftir fimm mínútna leik en Sam Tillen jafnaði metin fyrir Fram á lokamínútu fyrri hálfleiks. Garðar var svo aftur á ferðinni tæpum tuttugu mínútum fyrir leikslok og tryggði Stjörnunni sæti í undanúrslitum ásamt KR, Grindavík og Þrótti Reykjavík.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku