Stingum af með táknmáli

Lagið Stingum af sem Mugison hefur gert frægt var flutt með óhefðbundnum hætti í Hlíðaskóla í dag. Einn kennaranna tók sig til og flutti það á táknmáli í tilefni þess að á morgun er dagur íslenska táknmálsins.
Dagur íslenska táknmálsins er haldinn á stofndegi Félags heyrnarlausra, hagsmunasamtaka heyrnarlausra, og er ætlað að vekja athygli á íslenska táknmálinu. Í fyrra viðurkenndi Alþingi íslenska táknmálið og lauk þannig þrjátíu ára baráttu heyrnarlausra fyrir að fá táknmálið viðurkennt.
Eyrún Ólafsdóttir flutti lagið Stingum af á táknmáli á myndbandi sem sýnt var í Hlíðaskóla í dag. Það fékk góð viðbrögð og tóku nemendur í táknmálskennslunni undir þegar myndbandið með flutningi Eyrúnar var sýnt. Mikil áhersla er lögð á táknmál í Hlíðaskóla og fá allir nemendur í 1. til 7. bekk vikulega táknmálskennslu. Að auki er boðið upp á táknmál sem valfag á unglingastigi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentFleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Þekkingarbrunnur um táknmál
Frumvarp um táknmál samþykkt





