Steingrímur vill stóraukið eftirlit

Steingrímur J. Sigfússon Mynd:Getty Images
Steingrímur J Sigfússon, viðskiptaráðherra og formaður VG, vill í kjölfar lífeyrissjóðaskýrslunnar stórherða eftirlit með lífeyrissjóðum og grípa til allra lagalegra úrræða til að tryggja áhættudreifingu í fjárfestingu sjóðanna.
Steingrímur segir að lífeyrissjóðirnir séu umtalsvert laskaðir, þótt þeir hafi vissulega hafi rétt sig við aftur og eigið fé þeirra núna sé komið á svipaðar slóðir og hafi verið fyrir hrun. Það breyti þó ekki því að þarna hafi tapast mikil verðmæti.
Fara verði vandlega yfir þær skýringar sem þarna séu framreiddar og eftir atvikum velta því fyrir sér hvort þurfi frekari könnun á þessu máli. Grípa síðan til allra þeirra lagalegu úrræða sem möguleg séu til að tryggja betur áhættudreifingu í fjárfestingu lífeyrissjóða, tryggja miklu öflugra eftirlit og eftir atkvikum taka á uðppbyggingu kerfisins og stjórn lifeyrissjóða þannig að það sé minni hætta á að svona lagað endurtaki sig.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Kerfið byggðist á braski
Var ekki að fegra stöðu ríkissjóðs
Hefðu átt að hækka iðgjaldið





