Steingrímur: Mótmælin almenn óánægja
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna segir reiði fólks sem birtist við þingsetningarathöfnina í morgun vera almenna óánægju með það sem gerðist. Ríkisstjórnin sé að leggja sig alla fram og það megi ekki tala niður það sem þó hafi áunnist.
Það rigndi eggjum og tómötum yfir þingmenn, ráðherra og aðra gesti þegar gengið var milli þinghúss og dómkirkju við þingsetningu í morgun. Steingrímur J. Sigfússon segir eðlilegt að enn sé óánægja í samfélaginu, ólgan og reiðin séu skiljanleg. Ríkisstjórninni miði áfram en verkefnið sem hún stóð frammi fyrir, að bjarga þjóðinni frá gjaldþroti, hafi verið risavaxið. En var ekki verið að mótmæla ríkisstjórninni og kalla eftir kosningum.
„Ég held að þetta sé bara almenn óánægja með það sem hér gerðist og að einhverju leyti eru þá skilaboð til stjórnmálanna allra, Alþingis, allra stofnana í samfélaginu sem að fólki finnst að þurfi að standa sig betur og við eigum að sjálfstögðu að leggja eyrun við og gera það sem við getum í þessum efnum. Það tel ég nú reyndar að við höfum verið að gera. Síðan þyrfti umræðan í samfélaginu og við öll að hjálpast við að hafa hana uppbyggilega til að við gerum okkur þetta ekki erfiðara en það þarf að vera með því að tala niður það sem þó hefur áunnist. Nógu strembið er þetta samt," sagði Steingrímur í viðtali við fréttastofu RÚV.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







