Stefnir bænum vegna bensínstöðvar

Verktakafyrirtækið Skagaverk hefur stefnt Akranesbæ og krefst skaðabóta vegna afturköllunar byggingarleyfis. Félagið hafði fengið afgreitt byggingarleyfi til að reisa bensínstöð fyrir Atlantsolíu á lóðinni Kirkjubraut 39.
Byggingarleyfið var hins vegar afturkallað þegar túlkun á skilmálum deiluskipulags breyttist. Fréttavefurinn Skessuhorn greindi frá þessu.
Atlantsolía hefur sóst eftir því síðustu átta árin að fá að opna bensínstöð á Akranesi en hefur ekki orðið að ósk sinni. Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu, sagði við fréttastofu að þetta væri orðin löng vegferð upp á Akranes en þar teldu menn enn að á endanum yrði opnuð bensínstöð Atlantsolíu í bænum. Gerðar hafi verið fjórar til fimm tilraunir á síðustu árum sem ekki hafi borið árangur en því verði haldið áfram.
Nú síðast stóð til að reisa bensínstöð á Kirkjubraut 39 þar sem ESSO var með bensínstöð um langt árabil seint á síðustu öld. „Við vorum sannarlega mjög hissa þegar byggingarleyfið var afturkallað síðasta sumar. Það sem er svo skringilegt við þetta er að samkvæmt deiliskipulagi má reka þarna stöð en það má ekki byggja nýja stöð.“ Hugi segir að fyrstu viðbrögð vegna málsins úr Skipulagsstofnun hafi verið jákvæð en síðar hafi sú afstaða breyst og því farið sem fór.
Atlantsolía á ekki aðild að stefnu Skagaverks.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







