Stattu upp sigraði í símakosningu

Lagið Stattu upp sigraði í símakosningu Söngvakeppni Sjónvarpsins í gærkvöld, en var þó ekki valið, því dómnefnd keppninnar setti það í þriðja sæti. Stattu upp fékk um sjö hundruð atkvæðum meira en lagið Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón keppninni.
Tæplega áttatíu þúsund atkvæði voru greidd í gærkvöld, þegar flutningi laganna var lokið í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Stattu upp fékk 19.366 atkvæði, Mundu eftir mér fékk 18.649, og Hugarró var með 16.643 atkvæði sem þýðir að lagið Stattu upp sigraði í símakosningunni.
Dómnefnd keppninnar komst hins vegar að annarri niðurstöður. Í fyrsta sæti hennar var Mundu eftir í mér, í öðru sæti Hugarró, og Stattu upp var í þriðja sæti. Mat dómnefndar og almennings vegur jafnt í keppninni og þar sem Mundu eftir mér var í fyrsta sæti hjá nefndinni, og öðru sæti í símakosningunni, þá endaði það sem sigurvegari og framlag Íslendinga í Evróvisjón í maí. 78.943 atkvæði voru send inn í gærkvöld. Stjórnendur dagskrárdeildar RÚV hafa ekki gefið upp röð allra laganna aðeins þriggja efstu. Það er heldur ekki gefið upp hverjir sátu í dómnefnd nema að þar
eru sjö fulltrúar tónlistargeirans hér á landi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







