Stal bensíni af vörubíl

Sumir hafa ekki fyrir því að fara á bensínstöð þegar vantar eldsneyti á bílinn. Mynd: Shutterstock.

Olíuþjófur var á ferð í iðnaðarhverfinu á Ártúnshöfða í morgun. Eigandi vörubifreiðar kom að manni sem var að stela dísel olíu úr eldsneytistanki vörubílsins.

Styggð kom að manninum þegar hann varð eiganda vörubílsins var. Hann ók í flýti á brott en keyrði á tvo bíla í óðagotinu. Fyrst bakkaði hann á vörubifreiðina og rakst síðan á jeppa áður en honum tókst að aka á brott. Greinagóð lýsing fékkst á manninum og bílnum sem hann ók. Talið er að hann hafi náð að stela um 50 til 100 lítrum úr tankinum.

Þá var bíl stolið fyrir utan leikskóla í Breiðholti í morgun. Foreldri hafði skotist inn í leikskólann með barn og skilið bílinn eftir í gangi á meðan, hann var horfinn þegar foreldrið kom aftur út. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku