Stærðarinnar skriða lokar veginum

Í Þvottárskriðum. Mynd: Wikimedia Commons.

Stór skriða féll á veginn um Þvottárskriður, milli Lónsfjarðar og Álftafjarðar austan Hafnar í Hornafirði, um klukkan fjögur í nótt og hefur vegurinn verið lokaður síðan. Starsfmenn vegagerðarinnar vinna nú við að ryðja veginn. Varla er búist við að vegurinn verði opnaður fyrir hádegi.

„Þetta er bara stór haugur hérna á veginum, svona fjögurra til fimm metra hár og alveg fram á brún. Þetta er með stærstu skriðum sem ég hef séð hérna í lengri tíma,“ segir Þorleifur Ólsen, starfsmaður vegagerðarinnar, sem er á staðnum.

Mikið hefur rignt á þessum slóðum og þá er ekki óvanalegt að skriður falli. „Það eru búin að vera moksturstæki hérna síðan á mánudag að moka. Það féll skriða hér um helgina en sú náði ekki út á veg. Þessi lokar veginum alveg,“ segir Þorleifur sem býst við að verkið sækist seint. „Við munum sjá hvernig þetta gengur en þetta tekur heillangan tíma,“ segir hann.

Þrír flutningabílar, þar á meðal pósturinn, bíða sunnan skriðunnar. Einn þeirra kom að skriðunni um klukkan fjögur í nótt og hefur beðið síðan.  

Veðurstofan varar við vatnavöxtum frá Eyjafjöllum til Austfjarða í dag, en spáð er mikilli rigningu í þessum landshluta. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Austurland

Tilkynna um bilaða upptöku