Staða Þorgeirs skoðuð

Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir
Seðlabankinn hyggst skoða stöðu Þorgeirs Eyjólfssonar í ljósi skýrslunnar um lífeyrissjóðina. Þorgeir var ráðinn til bankans síðasta haust en hann var um árabil framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verslunnarmanna.
Sjóðurinn tapaði 80 milljörðum á hruninu samkvæmt úttektarskýrslunni um lífeyrissjóðina. Um 11 milljörðum, af þessum 80, tapaði Lífeyrissjóður verslunarmanna vegna skuldabréfa á banka og fjármálafyrirtæki. Inni í þeirri tölu eru þrjú víkjandi skuldabréf sem sjóðurinn keypti. Greiðendur voru Landsbankinn, Byr og Spron. Víkjandi skuldabréf eru þeirrar náttúru að við gjaldþrot útgefandans eru þau greidd á eftir öllum öðrum kröfum. Ekkert þessara þriggja bréfa fékkst nokkurn tíma greitt.
Um áramótin 2005-2006 átti lífeyrissjóðurinn skuldabréf á íslensk fyrirtæki fyrir tíu milljarða. Á tveimur árum, til ársloka 2007 jókst þessi eign um 76 prósent. Þetta var á sama tíma og lánamarkaðir í útlöndum lokuðust meira og minna sem þýddi að bankar og fyrirtæki herjuðu af auknum krafti á lífeyrissjóðina. Tap lífeyrissjóðs verslunarmanna vegna þessa liðs, 13 milljarðar.
Sjóðurinn tapaði 47 milljörðum á innlendum hlutabréfum. Mest var tapið vegna bréfa í Kaupþingi, 18 milljarðar. Í skýrslunni er sérstaklega vakin athygli á milljarða kaupum og sölu á hlutabréfum í bankanum árið 2008, sem komu út í tapi, jafnvel áður en bankinn féll. Sjóðurinn átti líka mikið í Exista og öðrum félögum sem tengdust Kaupþingi og Bakkavararbræðrum. Páll Gunnar Pálsson, stjórnarformaður lífeyrissjóðsins, sat í stjórn Kaupþings. Lífeyrissjóðurinn bætti við sig hlutabréfum í Glitni árið 2008 og eins bréfum í Spron, þrátt fyrir að verðið á þeim síðarnefndu hafi í raun verið í frjálsu falli þegar þau voru keypt.
Þá lagði sjóðurinn milljarða í svokölluð afleiðuviðskipti, -gjaldeyrisvarnarsamninga, -sem kalla mætti veðmál um það hvort krónan styrkist eða falli. Tíu milljarðar töpuðust þar.
Þorgeir Eyjólfsson var framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna frá 1984 til 2009. Undir lokin var hann með þrjár milljónir í mánaðarlaun og bílafríðindi. Síðasta haust, eftir viðkomu í MP banka, var Þorgeir ráðinn til Seðlabankans í tímabundin verkefni, án auglýsingar. Fréttastofa spurði Má Guðmundsson seðlabankastjóra út í stöðu Þorgeirs Eyjólfssonar innan bankans og hvort lífeyrissjóðaskýrslan breyti þar nokkru.
Már segir að Þorgeir hafi verið metinn fullhæfur til þeirra starfa sem hann sé að gegna. Þá verði þó skoðað í ljósi skýrslunnar, en hann hafi ekki fundið neitt ennþá.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







