Sprengjugnýr í Zabadini
Fyrst birt: 06.02.2012 14:11, Síðast uppfært: 06.02.2012 14:11

Reykur yfir borginni Homs.
Sýrlenski herinn réðst í dag inn í borgina Zabadini, skammt frá höfuðborginni Damaskus. Sýrlensk mannréttindasamtök segja að hundruðum brynvarinna farartækja hafi verið ekið inn í borgina. Þar heyrist þessa stundina mikill gnýr þegar skriðdrekasprengjur springa.
Einnig herma heimildir frá Sýrlandi að hermenn geri harða atlögu að borginni Homs. Á fréttavef BBC er haft eftir fréttaritara í borginni að sprengjugnýrinn sé nánast stöðugur. Í Homs hefur andstaðan við Bashar al Assad og stjórn hans verið hvað einörðust síðastliðna 11 mánuði.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
Tilkynna um bilaða upptöku







