Sportrásin í kvöld
Fyrst birt: 06.02.2012 13:12, Síðast uppfært: 06.02.2012 15:04

Herman Hreiðarsson verður á Sportrásinni í kvöld.
Sportrásin verður á alþjóðavettvangi í kvöld og kannar stöðuna á nokkrum atvinnumönum okkar í knattspyrnu og handbolta.
Guðlaugur Victor Pálsson New York Red Bulls, Kári Árnason Aberdeen, Hermann Hreiðarsson Coventry og Guðjón Valur Sigurðsson AG København verða vonandi á línunni. Hvur veit nema maður verði frumlegur og reyni að ná í Gylfa Þór Sigurðsson?
Þá verður körfubolta frömuðurinn Karl Jónsson á línunni frá Sauðarkróki en hans menn, Tindastóll laumuðu sér ljúflega í úrslitaleik bikarkeppni KKÍ í fyrsta skipti í gær með sigri á KR.
Símaþátturinn Sportrásin frá 19:30 í kvöld á Rás 2.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







